Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mið 31. mars 2021 14:38
Elvar Geir Magnússon
Byrjunarlið U21 landsliðsins - Ari fyrirliði í 5-3-2 kerfi
Icelandair
Ari Leifsson er fyrirliði.
Ari Leifsson er fyrirliði.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Búið er að tilkynna byrjunarlið U21 landsliðsins sem mætir ógnarsterku liði Frakklands klukkan 16:00. Um er að ræða lokaleik Íslands í riðlakeppni EM U21 landsliða.

Fjórir leikmannanna sem byrjuðu á sunnudag standa Davíð Snorra Jónassyni, þjálfara liðsins, ekki til boða. Þeir Jón Dagur Þorsteinsson, Sveinn Aron Guðjohnsen og Willum Þór Willumsson eru farnir í A-landsliðið og þá er Ísak Óli Ólafsson meiddur.

Smelltu hér til að fara í beina textalýsingu frá leiknum

Varnarmaðurinn Ari Leifsson er fyrirliði í dag þar sem Jón Dagur er farinn til Liechtenstein. Davíð Snorri stillir upp í 5-3-2 kerfi með Ara, Róbert Orra Þorkelsson og Finn Tómas Pálmason í miðvarðalínunni.

Andri Fannar Baldursson kemur inn á miðjuma og þeir Valdimar Þór Ingimundarson og Brynjólfur Willumsson spila fremstir.




Athugasemdir
banner
banner
banner