Guimaraes, Isak, Kimmich, Diaz, Branthwaite, Mainoo og fleiri góðir í slúðri dagsins
   fös 31. mars 2023 21:36
Brynjar Ingi Erluson
Mjólkurbikarinn: Þróttarar skoruðu átján - Jón Arnar með þrennu í sigri KFG
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Jón Arnar Barðdal skoraði þrennu fyrir KFG
Jón Arnar Barðdal skoraði þrennu fyrir KFG
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mynd: Hrefna Morthens
Þróttur R. sigldi nokkuð örugglega inn í aðra umferð Mjólkurbikarsins í kvöld en liðið slátraði Stokkseyri, 18-0, í Þróttheimum. Ernest Slupski og Jörgen Pettersen voru báðir með þrennu.

Þróttarar voru í ham og skoruðu níu mörk í hvorum hálfleik.

Slupski skoraði tvö mörk í fyrri hálfleiknum og eitt í þeim síðari en þá gerði Jörgen Pettersen þrennu á þrettán mínútum í seinni hálfleik.

Guðmundur Axel Hilmarsson, Hinrik Harðarson og Kostiantyn Iaroshenko voru allir með tvö mörk.

Njörður Þórhallsson, Baldur Hannes Stefánsson, Kostiantyn Pikul, Sam Hewson, Eiríkur Þorsteinsson Blöndal og Ágúst Karel Magnússon komust einnig á blað.

Jón Arnar Barðdal skoraði þrennu í 7-0 sigri KFG á Höfnum og þá vann Kári 5-0 sigur á Létti. Hvíti riddarinn og Smári eru þá komin áfram í næstu umferð.

Selfoss vann þá 7-1 sigur á Álftanesi. Alexander Clive Vokes skoraði þrennu fyrir Selfyssinga í leiknum.

Úrslit og markaskorarar:

Kári 5 - 0 Léttir
1-0 Sigurjón Logi Bergþórsson ('9 )
2-0 Nikulás Ísar Bjarkason ('44 )
3-0 Hafþór Pétursson ('45 )
4-0 Axel Freyr Ívarsson ('60 )
5-0 Nikulás Ísar Bjarkason ('77 )

Þróttur R. 18 - 0 Stokkseyri
1-0 Kostiantyn Iaroshenko ('1 )
2-0 Eiríkur Þorsteinsson Blöndal ('16 )
3-0 Ernest Slupski ('21 )
4-0 Ágúst Karel Magnússon ('23 )
5-0 Sam Hewson ('26 )
6-0 Ernest Slupski ('29 )
7-0 Kostiantyn Iaroshenko ('30 )
8-0 Guðmundur Axel Hilmarsson ('31 )
9-0 Kostiantyn Pikul ('33 )
10-0 Guðmundur Axel Hilmarsson ('51 )
11-0 Ernest Slupski ('63 )
12-0 Jorgen Pettersen ('67 )
13-0 Hinrik Harðarson ('73 )
14-0 Njörður Þórhallsson ('79 )
15-0 Jorgen Pettersen ('81 )
16-0 Jorgen Pettersen ('83 )
17-0 Baldur Hannes Stefánsson ('88 )
18-0 Hinrik Harðarson ('90 , Mark úr víti)

Hvíti riddarinn 3 - 2 GG
1-0 Guðjón Ingi Pétursson ('5 )
2-0 Guðjón Ingi Pétursson ('6 )
2-1 Hörður Kárason ('33 )
2-2 Filip Marcin Sakaluk ('45 )
3-2 Eiríkur Þór Bjarkason ('59 )

KFG 7 - 0 Hafnir
1-0 Jón Arnar Barðdal ('8 )
2-0 Birgir Ólafur Helgason ('16 )
3-0 Ólafur Bjarni Hákonarson ('35 )
4-0 Jón Arnar Barðdal ('45 )
5-0 Jón Arnar Barðdal ('58 )
6-0 Tómas Orri Almarsson ('65 )
7-0 Birgir Ólafur Helgason ('72 )

Berserkir/Mídas 1 - 2 Smári
0-1 Sölvi Santos ('23 )
0-2 Kristófer Óskar Óskarsson ('43 )
1-2 Steinar Ísaksson ('61 )

Selfoss 7 - 1 Álftanes
1-0 Adrian Sanchez ('26 )
2-0 Alexander Clive Vokes ('39 )
3-0 Alexander Clive Vokes ('55 )
4-0 Þór Llorens Þórðarson ('63 )
5-0 Alexander Clive Vokes ('79 )
5-1 Bjarni Leó Sævarsson ('81 , Mark úr víti)
6-1 Sesar Örn Harðarson ('90 )
7-1 Aron Einarsson ('90 )
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner