Malen, Maguire, Rashford, Greenwood, Yoro, Eriksen og fleiri góðir í slúðri dagsins
banner
   fös 31. mars 2023 15:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Ten Hag um Shaw: Yrði mjög ánægður ef þetta er satt
Mynd: Getty Images
Einhver umræða er um það að Luke Shaw sé að skrifa undir nýjan samning við Manchester United - eða sé jafnvel búinn að samþykkja samningstilboð frá félaginu. Félagið virkjaði ákvæði í samningi sínum við Shaw sem tryggði að hann myndi ekki renna út á samningi í sumar, núgildandi samningur rennur út sumarið 2024.

Erik ten Hag, stjóri United, var spurður út í Shaw á fréttamannafundi í dag.

„Ef hann er búinn að skrifa undir þá veit ég ekki af því, ég hef ekki heyrt af því fyrr en fyrst núna."

„Ég þarf að bíða og sjá hvort það sé frágengið, ég yrði mjög ánægður ef þetta er sátt."

„Ég vil klárlega halda honum hjá félaginu því hann er mjög mikilvægur leikmaður fyrir liðið okkar,"
sagði sá hollenski í dag.

Shaw er byrjunarliðsmaður í liðinu, hefur spilað virkilega vel í vinstri bakverði og hefur einnig leikið vel sem miðvörður á tímabilinu.

Shaw verður væntanlega í eldlínunni þegar Man Utd heimsækir Newcastle í ensku úrvalsdeildinni á sunnudag. Sá leikur hefst klukkan 15:30 á íslenskum tíma.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner