Fotbolti.net
31.05.20 - 22:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Með klásúlu um að geta elt Messi til Newell's Old Boys

Nahuel Guzman.

Nahuel Guzman.

Canon

Mynd: Getty Images

Nahuel Guzman, markvörður Tigres í Mexíkó, segist vera með klásúlú í samningi sínum sem gerir honum kleift að fara Newell's Old Boys ef Lionel Messi fer þangað.
Guzman, sem er 34 ára gamall, spilaði áður fyrr fyrir Newell's og vill ekki missa af tækifærinu að spila þar með Messi ef argentíski snillingurinn ákveður að enda feril sinn hjá félaginu sem hann var hjá áður en hann fór til Barcelona.

„Ég stakk upp á því að hafa þessa klásúlu og þeir settu hana í samning minn," sagði Guzman í viðtali við TyC Sports.

Messi verður 33 ára gamall í júní og er hann samningsbundinn Barcelona fram á næsta ár. Fyrr á þessu ári sagði frændi Messi að það væri ólíklegt að hann myndi snúa aftur til Newell's Old Boys vegna öryggisástæðna. „Borgin er hreint helvíti," sagði frændi Messi.
Lionel Messi.

Lionel Messi.

Canon

Mynd: Getty Images

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.