Ísak Bergmann Jóhannesson virðist vera á leið til 1. FC Köln en Köln er að kaupa leikmanninn frá Fortuna Düsseldorf. Köln vann þýsku B-deildina í vetur en Düsseldorf endaði í sjötta sæti.
Það er Bild sem segir frá og þar segir að Köln sé að virkja 5,5 milljóna evra riftunarákvæði í samningi Ísaks við Düsseldorf. Þar er sagt að Ísak fari í læknisskoðun hjá nýju félagi og mestar líkur séu á því að Köln verði niðurstaðan. 5,5 milljónir evra eru rétt tæplega 800 milljónir íslenskra króna.

Þetta eru mjög áhugaverð því það er mikill rígur á milli Köln og Düsseldorf.
Düsseldorf mistókst að komast upp um deild bæði tímabilin sem Ísak hefur verið á mála hjá félaginu. Hann kom fyrst á láni frá danska félaginu FCK og síðasta sumar keypti svo þýska félagið hann.
Ísak átti mjög gott tímabil með Düsseldorf, hljóp manna mest í þýsku B-deildinni, skoraði ellefu mörk og lagði upp sex í deildinni.
Skagamaðurinn varð 22 ára í mars og er í landsliðshópnum sem kemur saman eftir helgi.
Athugasemdir