Bayern á eftir ungstirni Bournemouth - Konate eftirsóttur
   sun 31. maí 2026 15:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
HM hópur Úrúgvæ: Ugarte og Darwin Nunez í hópnum - Suarez ekki með
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Marcelo Bielsa, landsliðsþjálfari Úrúgvæ hefur opinberað landsliðshópinn sem fer á HM í sumar.

Stærstu nöfnin í hópnum eru án efa Manuel Ugarte, leikmaður Man Utd, Rodrigo Bentancur, leikmaður Tottenham, Jose Maria Gimenez, leikmaður Atletico og Darwin Nunez, leikmaður Al-Hillal og fyrrum leikmaður Liverpool.

Luis Suarez, leikmaður Inter Miami, er ekki í hópnum en það ætti svo sem ekki að koma á óvart þar sem hann hefur ekki verið í hópnum undanfarið. Nahitan Nández, leikmaður Al-Qadsiah, er hins vegar ekki í hópnum en hann spilaði reglulega í undankeppninni.

Hinn 39 ára gamli Fernando Muslera er á leið á sitt fimmta Heimsmeistaramót.

Markmenn: Sergio Rochet, Fernando Muslera and Santiago Mele.

Varnarmenn: Guillermo Varela, Ronald Araújo, José María Giménez, Santiago Bueno, Sebastián Cáceres, Mathías Olivera, Joaquín Piquerez, Matías Viña.

Miðjumenn: Manuel Ugarte, Emiliano Martínez, Rodrigo Bentancur, Federico Valverde, Agustín Canobbio, Juan Manuel Sanabria, Giorgian de Arrascaeta, Nicolás de la Cruz, Rodrigo Zalazar, Facundo Pellistri, Maximiliano Araújo, Brian Rodríguez.

Sóknarmenn: Rodrigo Aguirre, Federico Viñas and Darwin Núñez.

Allir 104 leikirnir á HM verða í beinni á RÚV.

Samfelldar útsendingar frá því síðdegis og fram á nótt.

Kvöldin verða geggjuð í sumar!
Slapp
banner
banner