Fotbolti.net
31.07.13 - 12:07
Elvar Geir Magnússon

Elfar Freyr Helgason í Breiðablik (Staðfest)

Elfar Freyr Helgason í Breiðablik (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Varnarmaðurinn Elfar Freyr Helgason hefur skrifað undir tveggja ára samning við Breiðablik. Elfar Freyr hefur undanfarin ár verið atvinnumaður í Grikklandi, Noregi og Danmörku.
„Það þarf vart að taka fram hve mikil styrking þetta er fyrir Blikaliðið. Elfar, sem er uppalinn Bliki, varð bikarmeistari með Blikaliðinu árið 2009 og Íslandsmeistari árið 2010,\" segir á vefsíðunni blikar.is.

Elfar hefur spilað 78 leiki með meistaraflokki Breiðabliks og skorað 5 mörk, sex leiki með U-21 árs liði Íslands og þar að auki einn landsleik með A-landsliði Íslands.

Elfar er miðvörður en Rene Troost og Sverrir Ingi Ingason hafa verið miðvarðapar Blikar í sumar og fá þeir nú mikla samkeppni.

Elfar hefur undanfarin ár verið í herbúðum AEK Aþenu, Stabæk og Randers en ekki fengið þann spiltíma sem vonast hafði verið eftir. Hann snýr því aftur heim í græna búninginn.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.