31.07.26 - 17:30
Elvar Geir Magnússon
Chelsea sleppur við stigafrádrátt en fær sekt

Roman Abramovich.

Mynd: EPA

Roman Abramovich.

Mynd: EPA
Chelsea hefur verið sektað um 10 milljónir punda í sekt og hlotið skilorðsbundið bann frá leikmannakaupum fyrir brot á reglum varðandi greiðslur til umboðsmanna á tímabilinu 2009 til 2022.
Chelsea átti upphaflega að fá skilorðbundinn sex stiga frádrátt en það var fellt úr gildi eftir áfrýjun.
Chelsea átti upphaflega að fá skilorðbundinn sex stiga frádrátt en það var fellt úr gildi eftir áfrýjun.
Eigendurnir Todd Boehly og Clearlake Capital tilkynntu sjálfir um 74 brot á reglum enska fótboltasambandsins (FA) þegar þeir keyptu félagið árið 2022. Brotin áttu sér stað í eigendatíð Roman Abramobvich.
Upphaflega stóð til að sektin yrði 26 milljónir punda en hún var lækkuð vegna þess að félagið tilkynnti sjálft um brotin og sýndi samstarfsvilja.
10 milljónirnar sem Chelsea þarf að greiða í sekt munu renna til grasrótarstarfs í fótbolta.