Fotbolti.net
31.07.26 - 08:05
Elvar Geir Magnússon

Franco Baresi er látinn

Franco Baresi er látinn.

Franco Baresi er látinn.

Canon

Mynd: EPA

Franco Baresi er látinn, 66 ára að aldri. Baresi lék allan sinn tuttugu ára feril með AC Milan, frá 1977 þar til hann lagði skóna á hilluna árið 1997.
Hann vann á þeim tíma ítölsku A-deildina sex sinnum og þrjá Evrópumeistaratitla.

Baresi þykir einn besti varnarmaður sögunnar en hann var fyrirliði Milan í 15 tímabil, lék 719 leiki og skoraði 33 mörk.

Hann lék 81 landsleik fyrir Ítalíu og var í hópnum sem vann heimsmeistaramótið árið 1982. Hann spilaði í úrslitaleiknum 1994, þar sem Ítalía tapaði fyrir Brasilíu.

Á heimsmeistaramótinu 1994 sneri hann aftur eftir hnémeiðsli til að spila í úrslitaleiknum og tókst að mestu leyti að stöðva ógnina frá brasilísku sóknarmönnunum Romario og Bebeto í leik sem endaði 0-0. Þetta var fyrsti úrslitaleikur heimsmeistaramóts sem réðst í vítaspyrnukeppni; Baresi klúðraði fyrstu spyrnunni og Brasilía vann að lokum 3-2.

Baresi gekkst undir aðgerð í ágúst 2025 til að fjarlægja hnút í lunga.

Franco Baresi er látinn
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.