Fotbolti.net
31.07.26 - 12:17
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net

Hvaða áhrif munu slagsmálin í Keflavík hafa?

Alpha Conteh.

Alpha Conteh.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

„Það hefur soðið upp úr. Það eru oft átök á æfingum en að nefbrjóta mann á æfingu, maður heyrir það ekki oft. Það getur alveg haft áhrif innan vallar þegar það er eitthvað svona í gangi utan vallar," segir Valur Gunnarsson í útvarpsþættinum Fótbolti.net þegar rætt er um handalögmálin sem komu upp á æfingu Keflavíkur í vikunni.

Tveimur leikmönnum lenti saman á æfingunni og fóru högg á milli manna. Leikmaður nefbrotnaði eftir högg frá kantmanninum Alpha Conteh samkvæmt heimildum.

Conteh var nýlega keyptur til Keflavíkur hjá Stjörnunni eftir að hafa leikið virkilega vel á láni hjá Keflvíkingum og talað er um í þættinum að það sé skellur fyrir þá að þetta komi upp þegar þeir eru nýbúnir að opna veskið og kaupa hann fyrir einhverjar milljónir.
Slagsmál og nefbrot á æfingu Keflavíkur
TENGT EFNI

Slagsmál og nefbrot á æfingu Keflavíkur

„Það er mjög þétt umhverfi hjá Keflavík, það eru miklir Keflvíkingar þarna. Ég hef ekki áhyggjur af því hvaða áhrif þetta hefur á liðið heldur einstaklingana sem eiga í hlut, ég hef áhyggjur af því að þetta gæti haft einhver áhrif á stigasöfnunina," segir Tómas Þór Þórðarson í þættinum.

Í hlaðvarpsþættinum Þungavigtin er sagt að Muhamed Alghoul sé leikmaðurinn sem hafi orðið fyrir högginu frá Conteh og þar er því haldið fram að sættir hefðu ekki náðst. Jónas Guðni Sævarsson yfirmaður fótboltamála sagði í vikunni að umræddir einstaklingar myndu ekki mæta á æfingar á meðan verið væri að leysa úr málinu.

„Eitt af því sem verður skoðað fyrir næsta leik er hverjir eru með og hverjir ekki..." segir Elvar Geir og Tómas bætir við: „Og hverjir eru með grímu!"

Keflavík mætir KA næsta miðvikudag en Keflvíkingar hafa verið flottir á tímabilinu og sitja í sjötta sæti.
Muhamed Alghoul.

Muhamed Alghoul.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Útvarpsþátturinn - Slagsmál og Schram með skikkju

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Víkingur R.20+4651
2KR20+2743
3Fram20+1443
4Breiðablik20+530
5Keflavík20-328
6ÍA20-426
7Stjarnan20-1024
8Valur20-723
9FH20-1218
10ÍBV20-1217
11KA20-1416
12Þór20-3015
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.