Fotbolti.net
31.07.26 - 10:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Plan A og plan B hjá Man Utd

Lewis Hall er efstur á lista United.

Lewis Hall er efstur á lista United.

Canon

Mynd: EPA

Manchester United er að skoða vinstri bakverði og ætlar samkvæmt TEAMtalk að leggja fram stórt tilboð í Lewis Hall, bakvörð Newcastle og enska landsliðsins.

Hall átti gott tímabil með Newcastle og er búist við tilboði í kappann fljótlega. Eddie Howe er farinn frá Newcastle og fleiri lykilmenn gætu söðlað um.

Hall er öflugur fram á við en getur líka beðið til baka og er sterkur varnarlega. Talið er að Hall kosti um 60 milljónir punda. Hall verður 22 ára í september.
Þá er sagt frá því að Jorge Salinas sé næstur á lista United ef ekki tekst að krækja í Hall.

Salinas er nítján ára og er leikmaður Racing Santander á Spáni. Hann varð Evrópumeistari með U19 liði Spánar í Wales og fylgdist United með honum þar.

Racing fór upp úr spænsku B-deildinni í vetur og var Salinas í stóru hlutverki. Barcelona og Atletico Madrid eru einnig með augastað á Spánverjanum sem Racing metur á um 16 milljónir evra.

Leikmaður Barcelona er einnig á lista United yfir möguleg skotmörk í sumar. Alejandro Balde er vinstri bakvörður spænsku meistaranna og gæti verið horft til hans ef Barcelona fjárfestir í Salinas í sumar. Balde verður 23 ára í október.

Í öðrum United fréttum er félagið orðað við kantmennina Rafael Leao (AC Milan) og Francisco Conceicao (Juventus).
Balde er á blaði United.

Balde er á blaði United.

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.