Hörður Björgvin: Hreinlega veit ekki hvort ég sé á förum
Auglýsing

Hörður Björgvin á æfingu Íslands í Helsinki í morgun.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

„Ég er á voðalegum eldi hvað varðar markaskorun og vonandi heldur það áfram,\" segir Hörður Björgvin Magnússon sem skorað hefur sigurmörk í tveimur síðustu landsleikjum.
Hörður er að sjálfsögðu til í að skora í þriðja landsleiknum í röð þegar Ísland mætir Finnlandi á laugardag.

„Það væri mjög skemmtilegt að ná þriðja markinu inn og ná sigri. Við erum búnir að fara vel yfir finnska liðið og við eigum að vita nánast allt um það.\"
Hörður hefur þurft að verma varamannabekkinn hjá Bristol City í ennsku B-deildinni. Talsverður áhugi er á Herði og einhverjar hræringar í gangi með hans mál. Er hann á förum frá Bristol?
„Ég hreinlega veit það ekki. Það er eitthvað eftir af þessum glugga. Ég er ósköp rólegur yfir þessu, annars væri ég stressaður í þessu viðtali. Auðvitað langar mér að spila meira og vonandi gerist eitthvað á næstunni.\"
Sjáðu viðtalið í sjónvarpinu hér að ofan.