Kristján Ómar: Fæ mér ískalda malt eftir sigurleiki
Auglýsing

Kristján Ómar tók við þjálfun Hauka síðasta vetur.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

<i>„Við stigum skref í ákveðnum stigamarkmiðum sem við höfum verið með,\"</i> sagði Kristján Ómar Björnsson þjálfari Hauka eftir 1-2 sigur á Þrótti í Inkasso-deildinni í kvöld.
„Það leit ekki vel út með þau á tímabili, júlímánður og inn í ágúst var eyðimerkurganga. Núna erum við búnir að taka tvo sigra og klóra í bakkann með það sem við ætluðum að gera. Þetta hefur ekki verið til fyrirmyndar en í dag var þetta frábært.\"
Þróttur var ekki mikil mótspyrna við Hauka fyrr en annað mark Hauka kom.
„Þá fóru þeir að spila þennan leik sem ég myndi ekki vilja mæta í 90 mínútur. Þennan gamla góða norska bolta upp á tvo gríðarlega öfluga sentera sem við náðum að halda í skefjum framan af. Svo kom þetta mark frá Viktori sem maður er búinn að sjá hann skora af færibandin og gera virkilega vel.\"
Nánar er rætt við Kristján Ómar í viðtalinu að ofan en þar segist hann vera grjótharður bindindismaður... „en ég fæ mér ískalda malt alltaf eftir sigurleik og fagna.\"