Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   þri 31. ágúst 2021 11:50
Elvar Geir Magnússon
Leeds borgar metfé fyrir Daniel James
Daniel James.
Daniel James.
Mynd: Getty Images
Leeds United er að ganga frá kaupum á Daniel James frá Manchester United og gerir hann að dýrasta leikmanni í sögu félagsins.

James mun ksta 30 milljónir punda en Marcelo Bielsa, stjóri Leeds, efur fylgst vel með leikmanninum í nokkurn tíma. Hann var nálægt því að ganga í raðir félagsins í janúar 2019.

James hefur skorað níu mörk í 74 leikjum fyrir United.

Leeds var að hugsa um að reyna að kaupa hann í síðasta sumarglugga en fékk Brasilíumanninn Raphinha í staðinn.

BBC segir að aðeins eigi eftir að ganga frá formsatriðum áður en James verði kynntur sem nýr leikmaður Leeds.

Dýrasti leikmaður í sögu Leeds er Rodrigo sem keyptur var frá Valencia á 24,8 milljónir punda.
Athugasemdir
banner
banner