Fotbolti.net
31.08.26 - 19:20
Ívan Guðjón Baldursson

Ætla að fæla Man Utd frá með nýjum samningi

Ætla að fæla Man Utd frá með nýjum samningi
Canon

Mynd: EPA

Sky Sports segir frá því að Aston Villa ætli að bjóða bakverðinum sóknarsinnaða Ian Maatsen nýjan samning til að fæla Manchester United frá honum.
Rauðu djöflarnir eru sagðir vera í leit að nýjum vinstri bakverði og hafa spurst fyrir um Maatsen, sem er mikilvægur hlekkur í liðinu hjá Unai Emery.

Maatsen er með fjögur ár eftir af samningi við Aston Villa og er félagið reiðubúið að gefa honum launahækkun til að halda honum innan sinna raða.

Villa keypti Maatsen fyrir tæplega 40 milljónir punda sumarið 2024 og hefur hann spilað yfir 90 leiki fyrir félagið síðan.

Man Utd er einnig að skoða Lewis Hall hjá Newcastle United en eins og staðan er í dag er Luke Shaw eini hreinræktaði vinstri bakvörður liðsins. Patrick Dorgu, Diogo Dalot, Noussair Mazraoui og Carlos Baleba geta einnig leyst stöðuna af hólmi en félagið vill fá inn leikmann sem getur barist við Shaw um byrjunarliðssætið.

Eins og staðan er í dag er Maatsen í baráttu við Matteo Ruggeri um vinstri bakvarðarstöðuna hjá Aston Villa.
Ætla að fæla Man Utd frá með nýjum samningi
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.