31.08.26 - 10:23
Elvar Geir Magnússon
Albert færist nær Lazio - Gnonto fer til Fiorentina

Albert Guðmundsson er 29 ára.

Mynd: EPA

Albert Guðmundsson er 29 ára.

Mynd: EPA
Íslenski landsliðsmaðurinn Albert Guðmundsson gæti fært sig um set á Ítalíu og farið til Lazio fyrir gluggalok. Ítalskir fjölmiðlar segja Lazio vera í viðræðum við Fiorentina.
Sagt er að viðræður hafi þróast hratt og vel og líklegt sé að Albert fari á láni en Lazio verði með ákvæði um að geta keypt hann. Albert er sagður vilja fara til Lazio frekar en Bologna sem hefur einnig reynt að fá hann.
Ítalska glugganum verður lokað annað kvöld.

Fiorentina er að fá ítalska landsliðsmanninn Wilfried Gnonto lánaðan frá Leeds United út tímabilið. Sagt er að koma Gnonto auki líkurnar á því að Albert fari til Lazio.
Þrátt fyrir að vera fæddur á Ítalíu hefur Gnonto aldrei áður leikið í ítölsku A-deildinni. Þessi 22 ára gamli leikmaður hefur skorað 23 mörk í 147 leikjum í öllum keppnum fyrir Leeds á síðustu fjórum tímabilum.

Willy Gnonto.

Mynd: EPA