Fotbolti.net
31.08.26 - 10:22
Elvar Geir Magnússon
Ítalski boltinn

Atletico gerir tilboð í David - Juve að fá Sarr

Jonathan David.

Jonathan David.

Canon

Mynd: EPA

Atletico Madrid hefur gert formlegt tilboð í kanadíska sóknarmanninn Jonathan David hjá Juventus.

David gekk til liðs við Juventus á frjálsri sölu síðasta sumar eftir fimm farsæl ár með Lille í frönsku úrvalsdeildinni, en honum tókst ekki að sanna sig á fyrsta tímabili í ítölsku A-deildinni. Hann og liðið stóðu ekki undir væntingum.

Juventus hefur þegar fengið til sín nýjan sóknarmann í sumar, Randal Kolo Muani, sem er hugsaður sem staðgengill fyrir Dusan Vlahovic. Juventus vonast einnig til að fá mann í stað David áður en félagaskiptaglugginn lokar.
Juventus er að fá miðjumanninn Pape Matar Sarr frá Tottenham. Enska félagið samþykkti tilboð upp á 30 milljónir punda, fyrst fer hann á láni en ítalska félagið er skyldugt til að kaupa hann.

Sarr, sem er senegalskur landsliðsmaður, er á leið til Ítalíu til að ganga frá skiptunum.
Pape Matar Sarr.

Pape Matar Sarr.

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.