Fotbolti.net
31.08.26 - 18:03
Ívan Guðjón Baldursson
Byrjunarliðsfréttir

Byrjunarlið Villa og Arsenal: Suzuki og Jackson byrja

Byrjunarlið Villa og Arsenal: Suzuki og Jackson byrja
Canon

Mynd: Aston Villa

Aston Villa tekur á móti Englandsmeisturum Arsenal í lokaleik 2. umferðar enska úrvalsdeildartímabilsins og hafa byrjunarliðin verið tilkynnt.
Unai Emery gerir tvær breytingar á liði Aston Villa sem missti mann af velli með rautt spjald og steinlá 4-0 gegn Brighton í fyrstu umferð. Zion Suzuki þreytir frumraun sína á milli stanganna og fer Nicolas Jackson beint inn í sóknarlínuna.

Suzuki er nýkominn til Villa og fyllir í skarðið fyrir Emiliano Martínez sem er farinn til Chelsea. Nicolas Jackson er líka nýr og á að taka við starfi Ollie Watkins í fremstu víglínu.

Jackson kemur inn í byrjunarliðið fyrir Joao Gomes sem er í leikbanni eftir að hafa verið rekinn af velli í Brighton.

Mikel Arteta mætir þá til leiks með sama byrjunarlið og lagði Coventry að velli í fyrstu umferð. Bruno Guimaraes og Ezri Konsa byrja á bekknum en þeir voru keyptir í sumar úr röðum Newcastle og Aston Villa.

Aston Villa: Suzuki, Cash, Lindelof, Pau, Maatsen, Kamara, Barkley, McGinn, Buendía, Hemmings, Jackson.
Varamenn: Bizot, Mings, Ruggeri, Garnacho, Abraham, Bogarde, Wan-Bissaka, Alysson, Lynch.

Arsenal: Raya, White, Mosquera, Gabriel, Calafiori, Rice, Lewis-Skelly, Odegaard, Saka, Tzolis, Havertz.
Varamenn: Kepa, Hincapie, Konsa, Zubimendi, Guimaraes, Merino, Eze, Madueke, Gyokeres.
Byrjunarlið Villa og Arsenal: Suzuki og Jackson byrja
Canon

Mynd: EPA

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Arsenal11+1028
2Brighton11+1722
3Man City11+822
4Liverpool11+821
5Bournemouth11+418
6Brentford11+917
7Leeds11+517
8Chelsea11016
9Everton11-216
10Tottenham11+115
11Hull City11+214
12Aston Villa11-314
13Newcastle11-313
14Coventry11-812
15Fulham11-211
16Ipswich Town11-711
17Nott. Forest11-69
18Sunderland11-99
19Man Utd11-98
20Crystal Palace11-157
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.