Fotbolti.net
31.08.26 - 20:58
Ívan Guðjón Baldursson

England: Saka gerði sigurmarkið á Villa Park

England: Saka gerði sigurmarkið á Villa Park
Canon

Mynd: EPA

Aston Villa 0 - 1 Arsenal
0-1 Bukayo Saka ('59)
Aston Villa tók á móti Englandsmeisturum Arsenal í lokaleik 2. umferðar enska úrvalsdeildartímabilsins og ríkti mikið jafnræði með liðunum í lokuðum fyrri hálfleik.

Eberechi Eze kom inn fyrir Christos Tzolis, sem var á gulu spjaldi, í leikhlé og var aðeins meira að frétta í seinni hálfleiknum. Jarred Gillett dómari dæmdi vítaspyrnu fyrir Arsenal á 55. mínútu en færði hana útfyrir vítateig eftir athugun í VAR-herberginu.

Skömmu síðar komst Riccardo Calafiori í gegn eftir laglega sendingu frá Eberechi Eze. Ítalinn gerði mjög vel að setja boltann lágt fyrir markið þar sem Bukayo Saka skoraði af stuttu færi til að taka forystuna.

Heimamenn sköpuðu ekki mikla hættu á lokakaflanum á Villa Park og stóðu ríkjandi Englandsmeistarar uppi sem sigurvegarar þrátt fyrir að hafa ekki verið sannfærandi í kvöld.

Arsenal er með sex stig eftir tvær umferðir á meðan Aston Villa er án stiga.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.