31.08.26 - 18:54
Ívan Guðjón Baldursson
Forseti Rayo neitar að svara Fulham

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Fulham er að reyna að kaupa rúmenska bakvörðinn Andrei Ratiu úr röðum Rayo Vallecano en forseti félagsins neitar að svara.
Fulham er í leit að nýjum hægri bakverði og lagði fram 25 milljón evra tilboð í Ratiu, sem samsvarar riftunarákvæðinu í samningi hans við Rayo.
Forseti Rayo neitar að svara, sem þýðir að Fulham verður að greiða 25 milljónir evra beint til La Liga til að festa kaup á bakverðinum. Þetta verður að gerast í einni greiðslu, en Fulham vill greiðsludreifa félagaskiptunum eins og tíðkast í fótboltaheiminum. Rayo harðneitar að selja leikmanninn án þess að fá allar 25 milljónirnar inn á sama tíma.
Ratiu er 28 ára landsliðsmaður Rúmeníu sem átti frábært tímabil í spænska boltanum á síðustu leiktíð og reyndist einn af allra bestu bakvörðum efstu deildar. Þá stóð hann sig frábærlega í Sambandsdeildinni og hjálpaði Rayo alla leið í úrslitaleikinn.
Ratiu vill ólmur skipta í úrvalsdeildina og er mjög ósáttur með nálgun félagsins. Hann er ekki í byrjunarliðinu sem mætir Barcelona í spænsku deildinni í kvöld, en situr þó á bekknum.