Fotbolti.net
31.08.26 - 15:21
Elvar Geir Magnússon

Frábærir inni en ömurlegir undir berum himni

Frá Kórnum í Kópavogi.

Frá Kórnum í Kópavogi.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Lengjudeildin
Það er óhætt að segja að íþróttahúsið Kórinn sé helsta vopn HK. Munurinn á árangri liðsins í Lengjudeildinni í sumar á heimavelli og útivöllum er afskaplega áhugaverður, svo vægt sé til orða tekið.

Þegar HK-ingar eru inni í knatthúsinu sínu eru þeir illviðráðanlegir og hafa ekki tapað leik. Þeir hafa unnið níu heimaleiki og gert eitt jafntefli.
Ef aðeins er horft til heimaleikja þá er HK efst í töflunni, með betri árangur en Afturelding sem tryggði sér sigur í deildinni á laugardagainn.

Þegar HK spilar á útivöllum syrtir hinsvegar í álinn. Liðið hefur aðeins unnið tvo útileiki og bara Völsungur og Ægir, sem sitja í fallsætunum, sem hefur vegnað verr á útivöllum.

HK hefur tryggt sér í umspil Lengjudeildarinnar og á möguleika á því að komast á Laugardalsvöllinn annað árið í röð. HK-ingar væru vafalítið til í að úrslitaleikur umspilsins yrði leikinn innanhúss.

Heimaleikir

HK er með öflugasta heimavöll deildarinnar.

Útileikir

Á útivöllum er HK eitt lélegasta lið deildarinnar.
Frábærir inni en ömurlegir undir berum himni
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Afturelding21+3345
2Þróttur R.21+2340
3Fylkir21+1440
4HK21+1135
5Njarðvík21+835
6Leiknir R.21+228
7Grótta21-527
8Vestri21-1127
9ÍR21-725
10Grindavík21-1024
11Völsungur21-1423
12Ægir21-448
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.