31.08.26 - 19:12
Ívan Guðjón Baldursson
Glódís og Daníela Dögg í sigurliðum

Mynd: Fótbolti.net - Kara Líf Ingibergsdóttir

Það komu tvær íslenskar atvinnukonur við sögu í leikjum erlendis í dag og höfðu þær báðar sigur úr býtum.
Glódís Perla Viggósdóttir er fyrirliði hjá þýska risaveldinu FC Bayern og var á sínum stað í byrjunarliðinu í 2-0 sigri gegn Mainz í dag.
Þýskalandsmeistarar Bayern eru því með sex stig eftir tvær fyrstu umferðirnar á nýju tímabili.
Daníel Dögg Guðnadóttir kom þá inn af bekknum er Álasund lagði Hönefoss að velli í efstu deild í Noregi.
Álasund rétt marði eins marks sigur á útivelli og er í öðru sæti deildarinnar, með 34 stig eftir 14 umferðir. Daníela og stöllur eru fjórum stigum á eftir toppliði Brann.
Bayern 2 - 0 Mainz
Hönefoss 0 - 1 Aalesund