Fotbolti.net
31.08.26 - 23:02
Elíza Gígja Ómarsdóttir

Hákon Ernir: Það eru sögur að ganga, sumar eru sannar, sumar ekki, sumar misgáfulegar

Auglýsing
Hákon Ernir Haraldsson, þjálfari Stjörnunnar

Hákon Ernir Haraldsson, þjálfari Stjörnunnar

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

„Mjög góð, mjög gott að fá sigur. Auðvitað bara, setur okkur í góða stöðu, fáum alvöru leik á móti ÍBV þannig að bara léttir,“ sagði Hákon Ernir Haraldsson, einn þjálfari Stjörnunnar, eftir 0-2 sigur gegn Blikum í Kópavoginum í kvöld.

Lestu um leikinn: Breiðablik 0 - 2 Stjarnan

Það er orðið víðfrægt viðtalið sem Jón Þór Hauksson, sem var rekinn frá Stjörnunni fyrr í þessum mánuði, fór í hjá RÚV, hvernig metur núverandi teymi þetta viðtal?

„Það er auðvitað bara sögur að ganga, sumar eru sannar, sumar ekki, sumar misgáfulegar og hann auðvitað segir sína hlið það eru auðvitað einhverjar hliðar sem eiga eftir að koma í ljós, það verður bara að sjást seinna meir.“

Stjörnumenn mættu öflugir inn í leikinn í kvöld og voru ofan á í fyrri hálfleik. Þeir mættu svo öflugir inn í seinni hálfleikinn en voru fljótir að bakka og verja forystuna, voru þeir of snöggir að bakka og bjóða hættunni heim?

„Já, fyrri hálfleikur var bara mjög góður myndi ég segja. Byrjunin var góð, misstum aðeins tökin, náðum þeim aftur. Seinni hálfleikur, byrjum vel og fáum besta færi leiksins held ég bara. Svo svona aðeins tóku þeir völdin og við bara þurftum að loka leiknum og gerðum það ágætlega held ég. Árnii tók þá bolta sem þurfti og við stóðum þéttir.“

Árni Vilhjálmsson og Ari Leifsson eru tvö stór nöfn sem Stjarnan sótti í sumarglugganum en hingað til hafa þeir báðir spilað takmarkað magn af mínútum og mögulega ekki sýnt sínar bestu hliðar. Aðspurður hvort að þeir hafi búist við meiru frá þessum tveimur leikmönnum segir hann:

„Þetta eru bara leikmenn sem komu inn og þeir hafa komið vel inn. Liðið er sterkt og það er erfitt að komast í það og þeir þurfa bara að hafa fyrir því.“

Viðtalið við Hákon má sjá í heild sinni í spilaranum hér að ofan.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.