31.08.26 - 13:45
Elvar Geir Magnússon
Harvey Elliott nálgast Valencia

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Spænska félagið Valencia er í viðræðum við Liverpool um að fá miðjumanninn Harvey Elliott að láni út tímabilið.
Elliott, sem er 23 ára, var á láni hjá Aston Villa síðasta tímabil en byrjaði aðeins einn leik í úrvalsdeildinni fyrir þá.
Valencia, sem endaði í níunda sæti í La Liga síðasta tímabil og komst ekki í Evrópukeppnina, hefur verið að vinna að því að finna fjárhagslega hagkvæma leið til að láta lánssamninginn ganga upp.
Spænska félagið vill að Liverpool greiði helming launa miðjumannsins.

TENGT EFNI
Valencia nær samkomulagi við Elliott
Elliott spilaði reglulega á undirbúningstímabili Liverpool undir nýja stjóranum Andoni Iraola en hefur ekki verið í leikmannahópum félagsins í fyrstu tveimur deildarleikjunum.