Fotbolti.net
31.08.26 - 22:29
Ívan Guðjón Baldursson

Hull City reynir við fjóra í viðbót

Hull City reynir við fjóra í viðbót
Canon

Mynd: EPA

Hull City hefur farið gríðarlega vel af stað eftir endurkomu í ensku úrvalsdeildina. Liðið er með sex stig eftir að hafa haldið markinu hreinu fyrstu tvær umferðirnar gegn Manchester United og Coventry City.
Ekki slæmt fyrir lélegasta lið í sögu ensku úrvalsdeildarinnar
TENGT EFNI

Ekki slæmt fyrir lélegasta lið í sögu ensku úrvalsdeildarinnar

Stjórnendur félagsins hafa verið önnum kafnir við að styrkja leikmannahópinn undanfarnar vikur og eru nokkrir nýir leikmenn að bætast við undir lok félagaskiptagluggans.

Hull er að kaupa Tim Iroegbunam úr röðum Everton fyrir 13 milljónir punda en 10 milljónir geta bæst við upphæðina í árangurstengdar aukagreiðslur.

Iroegbunam er 23 ára miðjumaður sem kom við sögu í 29 deildarleikjum með Everton á síðustu leiktíð.

Þá er Robinio Vaz á leiðinni á lánssamningi frá Roma. Hull borgar 2 milljónir evra fyrir lánssamninginn og fylgir 30 milljón evru kaupmöguleiki með.

Hull er þar að auki búið að ná samkomulagi við Stuttgart um kaupverð fyrir þýska bakvörðinn Josha Vagnoman.

Vagnoman er 25 ára gamall og með tvo landsleiki að baki fyrir Þýskaland. Hull borgar um 7 milljónir evra til að festa kaup á bakverðinum sem kom við sögu í 40 leikjum með Stuttgart á síðustu leiktíð.

Hull á eftir að semja við Vagnoman um launamál en það ætti ekki að vera vandamál.

Nýliðarnir eru að lokum að reyna að kaupa Sorba Thomas frá Stoke City. Stoke er búið að gefa munnlegt samþykki fyrir kauptilboði frá Hull, ef Championship félaginu tekst að finna leikmann til að fylla í skarðið í tæka tíð.

Félagaskiptaglugginn lokar annað kvöld og gæti Stoke reynt að fá Liam Millar úr röðum Hull til að fylla í skarðið fyrir Thomas.

Stoke samþykkti 7 milljón punda tilboð með árangurstengdum aukagreiðslum upp á 3 milljónir til viðbótar.

Hull er búið að krækja í 12 leikmenn í sumar fyrir um það bil 100 milljónir punda.

Hefur ekki áhuga á að fara til Hull
TENGT EFNI

Hefur ekki áhuga á að fara til Hull

Hull City reynir við fjóra í viðbót
Canon

Mynd: EPA

Hull City reynir við fjóra í viðbót
Canon

Mynd: EPA

Hull City reynir við fjóra í viðbót
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Arsenal11+1028
2Brighton11+1722
3Man City11+822
4Liverpool11+821
5Bournemouth11+418
6Brentford11+917
7Leeds11+517
8Chelsea11016
9Everton11-216
10Tottenham11+115
11Hull City11+214
12Aston Villa11-314
13Newcastle11-313
14Coventry11-812
15Fulham11-211
16Ipswich Town11-711
17Nott. Forest11-69
18Sunderland11-99
19Man Utd11-98
20Crystal Palace11-157
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.