Fotbolti.net
31.08.26 - 20:46
Ívan Guðjón Baldursson
Ítalski boltinn

Ítalía: Malen óstöðvandi - Dramatík í Bergamó

Ítalía: Malen óstöðvandi - Dramatík í Bergamó
Canon

Mynd: EPA

Það fóru tveir leikir fram í efstu deild ítalska boltans í dag þar sem Rómverjar sigruðu þægilega í Lecce.
Donyell Malen hefur verið einn besti leikmaður Serie A deildarinnar frá félagaskiptunum til Roma í vetur og hélt hann uppteknum hætti með því að skora tvennu í fyrri hálfleiknum.

Hinn efnilegi Matías Soulé setti þriðja markið svo staðan var 0-3 í leikhlé. Í síðari hálfleik fékk Rodrigo Mora að spreyta sig af bekknum og innsiglaði hann fjögurra marka sigur skömmu eftir innkomuna.

Roma hefur farið mjög vel af stað á nýju tímabili undir stjórn Gian Piero Gasperini og er með markatöluna 8-0 eftir tvær fyrstu umferðirnar. Lecce er með þrjú stig eftir sigur gegn nýliðunum frá Feneyjum í fyrstu umferð.

Atalanta mætti svo Bologna í seinni leik dagsins og hélst staðan markalaus stærsta hluta leiksins.

Gestirnir frá Bologna voru sterkari aðilinn allan leikinn en náðu ekki að skapa mikla hættu. Atalanta varðist vel og náði að stela sigrinum með langskoti frá Lazar Samardzic seint í uppbótartíma. Lukasz Skorupski markvörður átti að gera betur.

Lokatölur urðu því 1-0 og er Atalanta með sex stig eftir tvær umferðir. Bologna er án stiga.

Lecce 0 - 4 Roma
0-1 Donyell Malen ('4 )
0-2 Donyell Malen ('23 )
0-3 Matias Soule ('25 )
0-4 Rodrigo Mora ('65 )

Atalanta 1 - 0 Bologna
1-0 Lazar Samardzic ('96 )
Ítalía: Malen óstöðvandi - Dramatík í Bergamó
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.