31.08.26 - 14:19
Elvar Geir Magnússon
Jesus kominn til Barcelona til að gangast undir læknisskoðun

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Framherjinn Gabriel Jesus hjá Arsenal er lentur í Barcelona þar sem hann er á leið í læknisskoðun.
Brasilíski framherjinn vonast til að ganga frá 8,6 milljóna punda skiptum til spænska meistaraliðsins.

Jesus er 29 ára og hefur leikið með Arsenal frá árinu 2022 þegar hann kom til félagsins frá Manchester City. Hann hefur verið orðaður við nokkur félög í sumar en hjólin fóru fyrst að snúast fyrir alvöru þegar Barcelona bankaði á dyrnar.
Barcelona sneri sér að Jesus eftir að ljóst varð að félaginu tækist ekki að sannfæra Atlético Madríd um að selja Julian Alvarez.
Jesus hefur skorað 32 mörk í 123 leikjum fyrir Arsenal og vann sinn fyrsta titil með félaginu þegar það varð Englandsmeistari í vor.