Fotbolti.net
31.08.26 - 12:50
Elvar Geir Magnússon

Juventus að landa Woltemade

Juventus að landa Woltemade
Canon

Mynd: EPA

Þýski framherjinn Nick Woltemade er nálægt því að ganga í raðir Juventus á láni frá Newcastle.

Guardian segir Newcastle vera í viðræðum um 5 milljóna punda sölu.

Skiptin virðist þó vera háð því að framherji komi til St James' Park, þar sem Matias Fernandez-Pardo frá Lille er efstur á óskalistanum hjá Matthias Jaissle. Marokkóski landsliðsmaðurinn Bilal El Khannouss hjá Stuttgart er númer tvö á þeim óskalista.
Woltemade var keyptur til Newcastle frá Stuttgart fyrir metfé síðasta sumar. Hann skoraði 11 mörk í 51 leik í öllum keppnum á sínu fyrsta tímabili. Hann kom inn á í 2-0 sigri á Tottenham um helgina en var ónotaður varamaður í jafntefli gegn Liverpool í fyrstu umferð.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.