Fotbolti.net
31.08.26 - 08:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Leikmenn Tottenham eftirsóttir

Kevin Danso í baráttunni

Kevin Danso í baráttunni

Canon

Mynd: EPA

Sunderland er í viðræðum við Tottenham um varnarmanninn Kevin Danso. Tottenham hefur hafnað lánstilboði frá Tottenham í miðvörðinn.
Sunderland er vongótt um að ná samkomulagi um þennan 27 ára gamla leikmann. Félagið íhugar að gera annað lánstilboð með kaupmöguleika.

Tottenham mun líklega þurfa að kaupa annan miðvörð áður en félagið leyfir Danso að fara.

Þá er miðjumaðurinn Pape Matar Sarr einnig eftirsóttur. Juventus vill fá hann á láni með kaupskyldu ef hann nær ákveðnum árangri.

Juventus þyrfti að kaupa hann fyrir rúmlega 22 milljónir punda ef félagið nær Meistaradeildarsæti og Sarr spili helming leikja liðsins á tímabilinu.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.