Fotbolti.net
31.08.26 - 17:58
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Líkleg byrjunarlið í stórleiknum - Tveir snúa aftur hjá KR og enginn Vatnhamar

Arnór Ingvi tók út leikbann gegn KA.

Arnór Ingvi tók út leikbann gegn KA.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Klukkan 17:30 á morgun tekur KR á móti Víkingi í lokaleik 21. umferðar í Bestu deildinni. Leikurinn hefst svona snemma þar sem engin flóðljós eru á Meistaravöllum.

Átta stig skilja liðin að og eftir að Fram gerði jafntefli í gær eru liðin í 1. og 3. sæti deildarinnar.
KR, sem hefur fengið fimmtán stig úr sinni sjö leikja taplausu hrinu í deildinni, endurheimtir tvo lykilmenn úr leikbanni. Þeir Arnór Ingvi Traustason og Finnur Tómas Pálmason tóku út leikbann gegn KA í síðustu umferð og Fótbolti.net spáir því að þeir komi beint inn í liðið aftur þrátt fyrir að Sigurður Breki Kárason hafi spilað frábærlega í fjarveru Arnórs og Michael Akoto spilað vel í fjarveru Finns. Að öðru leyti spáum við óbreyttu KR liði frá sigrinum á KA.


Víkingur hefur fengið ellefu stig úr sinni fimm leikja taplausu hrinu en eina tap Víkings í deildinni kom gegn Þór þar á undan. Það verður allavega ein breyting á liði Víkings frá tapinu gegn Borac í vikunni þar sem Gunnar Vatnhamar er að ganga í raðir danska félagsins Vejle og verður ekki með. Við spáum því að Sveinn Gísli Þorkelsson komi inn í hjarta varnarinnar og spili með Oliver Ekroth. Daníel Hafsteinsson er að komast af stað eftir meiðsli og við spáum því að hann komi inn á miðjuna fyrir Viktor Örlyg Andrason. Þeir Ármann Ingi Finnbogason og Nikolaj Hansen gera sterkt tilkall á sæti í byrjunarliðinu en við spáum því að Aron Elís Þrándarson verði áfram fremstur og að þeir Stígur Diljan Þórðarson og Hrannar Snær Magnússon verði áfram á kantinum. Svo er spurning hvort Ögmundur Kristinsson komi inn í markið en hann var á bekknum gegn Borac í vikunni. Við spáum því samt að Aron Snær Friðriksson haldi sæti sínu í markinu.

Aron Baldvin Þórðarson, aðstoðarþjálfari Víkings, tekur út leikbann í leiknum eftir að hafa fengið rautt spjald gegn Val.

Sigurður Breki var frábær gegn KA en við búumst við því að hann byrji á bekknum á morgun.

Sigurður Breki var frábær gegn KA en við búumst við því að hann byrji á bekknum á morgun.

Canon

Mynd: Akureyri.net/Ármann Hinrik

Gunnar Vatnhamar verður kynntur hjá Vejle á næstunni.

Gunnar Vatnhamar verður kynntur hjá Vejle á næstunni.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Finnur Tómas hefur átt mjög gott tímabil í hjarta varnarinnar.

Finnur Tómas hefur átt mjög gott tímabil í hjarta varnarinnar.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Við spáum því að Sveinn Gísli komi inn í lið Víkings.

Við spáum því að Sveinn Gísli komi inn í lið Víkings.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Eiður Gauti byrjaði á bekknum í fyrri leiknum gegn Víkingi.

Eiður Gauti byrjaði á bekknum í fyrri leiknum gegn Víkingi.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Víkingur R.20+4651
2Fram21+1444
3KR20+2743
4Breiðablik20+530
5Keflavík21-428
6ÍA21-427
7Valur21-724
8Stjarnan20-1024
9FH21-1121
10Þór21-2918
11ÍBV21-1317
12KA21-1417
Daníel Hafsteinsson er lykilmaður hjá Víkingum.

Daníel Hafsteinsson er lykilmaður hjá Víkingum.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.