31.08.26 - 11:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Liverpool að krækja í ungan Frakka - Kemur næsta sumar

Mynd: Saint-Etienne

Mynd: Saint-Etienne
Liverpool hefur náð samkomulagi við Saint-Etienne um kaup á Djylian N'Guessan.
Hanner 18 ára franskur framherji sem mun fara til Liverpool næsta sumar. Hann er búinn að fá grænt ljós á að fara í læknisskoðun hjá Liverpool. Hann getur líka spilað á báðum köntum.
Liverpool er að undirbúa framtíðina og er líka að klára Lucca Brughmans, markvörð Genk, sem fer líklega líka til Liverpool næsta sumar.

Chelsea reyndi að kaupa N'Guessan í vetur og þá var sagt að Saint-Etienne hefði hafnað sjö milljóna punda tilboði en væri opið að selja hann fyrir ellefu milljónir punda. Hann hefur einnig verið orðaður við Arsenal og Tottenham.
Hann hefur þegar spilað þrettán leiki fyrir aðallið Saint-Etienne, sem er í næstefstu deild Frakklands, og skoraði sitt fyrsta mark í nóvember í fyrra. Hann varð 18 ára í gær og hefur spilað með U20 landsliði Frakklands.