Fotbolti.net
31.08.26 - 08:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Myndband: Alisson lét reiði sína bitna á skiptispjaldi

Myndband: Alisson lét reiði sína bitna á skiptispjaldi
Canon

Mynd: EPA

Alisson, markvörður Liverpool, lét reiði sína bitna á skiptispjaldi eftir 2-2 jafntefli liðsins gegn Nottingham Forest um helgina.

Skiptispjaldið sem fjórði dómarinn sýnir skiptingar og uppbótatímann hefur verið mikið í umræðunni en Andoni Iraola var ekki sáttur í leikslok.
Kostuðu vandræði með skiptispjald Liverpool?
TENGT EFNI

Kostuðu vandræði með skiptispjald Liverpool?

Iraola vildi gera þrefalda skiptingu í stöðunni 1-1 en það tók fjórða dómarann langan tíma að undirbúa spjöldin. Áður en LIverpool gat framkvæmt skiptingarnar fékk Forest víti og Morgan Gibbs-White kom liðinu í 2-1.

Alisson, markvörður Liverpool, var ekki sáttur í leikslok og sparkaði í skiptispjald með þeim afleiðingum að það brotnaði.

Liverpool er aðeins með tvö stig eftir tvær umferðir en liðið gerði einnig 2-2 jafntefli gegn Newcastle í fyrstu umferð.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.