Fotbolti.net
31.08.26 - 13:38
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Newcastle að kaupa liðsfélaga Hákonar á 60 milljónir evra

Newcastle að kaupa liðsfélaga Hákonar á 60 milljónir evra
Canon

Mynd: EPA

Newcastle hefur náð samkomulagi við Lille um kaup á Matias Fernandez-Pardo.

Fernandez-Pardo er 21 árs sóknarmaður, landsliðsmaður Belgíu, sem mun skrifa undir fimm ára samning við Newcastle.

Félagaskiptasérfræðingurinn Fabrizio Romano segir að Newcastle greiði 60 milljónir evra fyrir Belgann og getur sú upphæð hækkað út frá árangurstengdum gjöldum.
Fernandez-Pardo getur bæði spilað sem fremsti maður og á kantinum. Hann hefur skorað tólf mörk í 71 leik og verið liðsfélagi Hákonar Arnars Haraldssonar hjá Lille síðan 2024.

Þetta verður önnur stóra salan hjá Lille í sumar því Ayyoub Bouaddi fór til Manchester City á um 86 milljónir punda fyrr í glugganum.

Fernandez-Pardo er að koma til Newcastle og á móti getur Nick Woltemade farið frá félaginu til Juventus.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.