Ólafur Ingi: Ef það er einhverntímann sem við þurfum á því að halda þá er það núna

Ólafur Ingi Skúlason, þjálfari Breiðabliks

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Ólafur Ingi Skúlason, þjálfari Breiðabliks

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Já, bara svipuð að því leitinu til að við erum pínu eftir á í flestum aðgerðum í fyrri hálfleik,“ sagði Ólafur Ingi Skúlason, þjálfari Blika, eftir 0-2 tap gegn Stjörnunni á heimavelli í dag.
„Mér fannst þeir ákveðnari, vinna fleiri návígi, vinna fleiri seinni bolta. Beinskeyttari en við, spörkuðu yfir pressuna okkar og unnu sig þaðan upp völlin og við díluðum bara illa við það. Héldum ágætlega í boltann á köflum án þess að herja eitthvað að viti á þá. Svo náttúrulega bara komum við út í seinni hálfleik með miklu meiri ákefð í öllu sem við gerum og erum að banka og fáum fínustu færi sem að við tökum því miður ekki,“ hélt hann svo áfram.
Það styttist óðfluga í úrslitaleik Mjólkurbikarsins þar sem Blikarnir mæta nýkrýndum Lengjudeildarmeisturum í Aftureldingu. Blikarnir hafa nú sótt eitt stig í síðustu fimm leikjum, það hlýtur að vera áhyggjuefni fyrir bikarúrslitin hversu vondu skriði liðið er á komandi inn í þann leik?
„Já það svo sem er það alveg að einhverju leyti. Ég tel samt að þetta séu lítil atriði sem skipta miklu máli, við verðum að klára sóknirnar okkar betur, við verðum að fá meira út úr 'possessioninu' sem við höfum og það er aftur seinni hálfleikur, miklu, miklu betri eins og hann var á móti Fram á meðan fyrri hálfleikur, við erum með ágætis 'possession' tölur en þær telja bara ekkert. Við þurfum að nýta okkur þær stöður betur og herja meira á mark andstæðinganna, klára sóknir og fá fleiri marktilraunir. Það er það sem stendur upp úr, við þurfum að vera betri í báðum teigum.“
Það eru ansi margir Blikar í stúkunni greinilega orðnir þreyttir á frammistöðu liðsins á tímabilinu. Aðspurður hvað hann vill segja við þá allra pirruðustu segir hann:
„Ég skil þá bara mjög vel, við erum að vinna hörðum höndum að því að bæta leik okkar og bæta þessi atriði sem að eru að valda því að við erum í þessari stöðu. Ég hvet bara fólk til þess að koma og styðja við bakið á okkur. Ef það er einhverntímann sem við þurfum á því að halda þá er það núna. Það býr mikið í þessu liði eins og við sýnum á köflum og þetta snýst bara um að við náum í frammistöðu í 90 mínútur. Fólk sem að mætir á völlinn sér það alveg að við erum með gott lið og auðvitað, eins og ég sagði áðan, erum við að vinna hörðum höndum og höfum mikla trú á þessu liði þannig það er bara að mæta og styðja við bakið á okkur.“
Viðtalið við Óla má sjá í heild sinni í spilaranum hér að ofan.
