Fotbolti.net
31.08.26 - 21:08
Ívan Guðjón Baldursson

Róbert Frosti skoraði í þægilegum sigri

Brynjar Ingi sá rautt gegn Viktori Bjarka

Róbert Frosti skoraði í þægilegum sigri
Canon

Mynd: GAIS

Það komu nokkrir Íslendingar við sögu í leikjum dagsins víða um Evrópu, þar sem Róbert Frosti Þorkelsson skoraði í frábærum sigri GAIS.
Róbert Frosti var í byrjunarliðinu í fjögurra marka sigri gegn Brommapojkarna. Róbert skoraði annað mark leiksins og er GAIS um miðja efstu deild í Svíþjóð, aðeins sex stigum frá Evrópusæti.

Daníel Tristan Guðjohnsen sat allan tímann á bekknum er Malmö vann nauman sigur á útivelli gegn toppliði Sirius. Malmö er með 29 stig eftir 19 umferðir, þremur stigum frá Evrópusæti.

Viktor Bjarki Daðason kom þá inn af bekknum í Íslendingaslag þegar FC Kaupmannahöfn lagði Sönderjyske að velli í Danmörku. Rúnar Alex Rúnarsson sat á bekknum.

Viktor Bjarki lék síðasta hálftímann á meðan Brynjar Ingi Bjarnason og Daníel Leó Grétarsson byrjuðu í liði gestanna. Þeim tókst þó ekki að koma í veg fyrir 3-1 tap og fékk Brynjar Ingi beint rautt spjald á 70. mínútur.

FCK er með 12 stig eftir 5 umferðir á nýju tímabili en Sönderjyske hefur farið illa af stað og er aðeins með 1 stig.

Óttar Magnús Karlsson lék allan leikinn í tapi Renate í C-deild ítalska boltans. Renate er án stiga eftir tvær umferðir og er Óttar Magnús einn af allra mikilvægustu leikmönnum liðsins.

Að lokum var Sverrir Ingi Ingason fjarverandi vegna meiðsla er Panathinaikos lagði Levadiakos að velli í efstu deild í Grikklandi.

GAIS 4 - 0 Brommapojkarna
1-0 R. Niklasson ('22)
2-0 Róbert Frosti Þorkelsson ('34)
3-0 S. Salter ('67)
4-0 M. Andersson ('77)

Sirius 0 - 1 Malmö

Kaupmannahöfn 3 - 1 Sönderjyske

Renate 0 - 1 Cittadella

Levadiakos 0 - 2 Panathinaikos

Spjelkavik 3 - 1 Molde2

Jong AZ 2 - 1 Jong Utrecht
Róbert Frosti skoraði í þægilegum sigri
Canon

Mynd: EPA

Róbert Frosti skoraði í þægilegum sigri
Canon

Mynd: SönderjyskE

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.