Fotbolti.net
31.08.26 - 21:33
Ívan Guðjón Baldursson

Spánn: Raphinha og Yamal sökktu Rayo

Spánn: Raphinha og Yamal sökktu Rayo
Canon

Mynd: EPA

Tveir leikir fóru fram í spænska boltanum í kvöld þar sem Spánarmeistarar Barcelona rúlluðu yfir Rayo Vallecano, sem komst óvænt í úrslitaleik Sambandsdeildarinnar á síðustu leiktíð.
Rayo náði forystunni á Nývangi í kvöld en Raphinha og Lamine Yamal voru fljótir að svara. Staðan var 2-1 í leikhlé og bættu bæði lið marki við í upphafi síðari hálfleiks, áður en Raphinha og Yamal gerðu út um viðureignina.

Þeir settu sitthvora tvennuna og urðu lokatölur 5-2. Börsungar eru því með fullt hús stiga eftir þrjár umferðir og markatöluna 12-2. Lærlingar José Mourinho hjá Real Madrid eru einnig með fullt hús stiga en hafa skorað tveimur mörkum minna.

Í fyrri leik kvöldsins skoraði Ante Budimir eina mark leiksins úr vítaspyrnu í sigri Osasuna gegn Getafe.

Barcelona 5 - 2 Rayo Vallecano
0-1 Sergio Camello ('12 )
1-1 Raphinha ('19 )
2-1 Lamine Yamal ('21 )
2-2 Florian Lejeune ('51 , sjálfsmark)
2-3 Sergio Camello ('59 )
3-3 Raphinha ('71 )
4-3 Lamine Yamal ('90 )

Osasuna 1 - 0 Getafe
1-0 Ante Budimir ('45+2, víti)
Spánn: Raphinha og Yamal sökktu Rayo
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.