Rashford, Fonseca, Moyes, Jorginho, Fati, Lenglet, Amorim, Sterling og Lukaku koma við sögu
   mið 27. janúar 2016 14:41
Magnús Már Einarsson
Heimild: Heimasíða Hauka 
Björgvin Stefánsson á reynslu hjá Kongsvinger
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Björgvin Stefánsson, framherji Hauka, er farinn til norska félagsins Kongsvinger á reynslu.

Kongsvinger vann sinn riðil í norsku C-deildinni í fyrra og spilar í B-deildinni í ár.

Björgvin, sem var markakóngur 1. deildar í fyrra, verður í tíu daga við æfingar hjá Kongsvinger.

Fleiri lið hafa sýnt Björgvin áhuga en hann var á dögunum til reynslu hjá Lilleström ásamt Gunnlaugi Fannari Guðmundssyni, liðsfélaga sínum úr Haukum.

Björgvin er 21 árs gamall en hann var valinn efnilegastur í 1. deildinni í fyrra.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner