Claudio Ranieri verður heiðraður af Rómaborg fyrir afrek sitt að gera Leicester að Englandsmeisturum í fyrra.
Ranieri var rekinn á dögunum eins og allir vita en liðið er rétt við fallsvæðið í ensku úrvalsdeildinni.
Ranieri var rekinn á dögunum eins og allir vita en liðið er rétt við fallsvæðið í ensku úrvalsdeildinni.
Ranieri er fæddur og uppalinn í Rómaborg og skráði sig á spjöld fótboltasögunnar með því að landa titlinum með Leicester. Fyrir tímabilið töldu veðbankar meiri möguleika á því að Elvis myndi koma fram á lífi.
Ranieri hefur hlotið fjölda viðurkenninga fyrir þetta stóra afrek.
Athugasemdir