Rashford, Fonseca, Moyes, Jorginho, Fati, Lenglet, Amorim, Sterling og Lukaku koma við sögu
   mán 02. maí 2016 20:07
Ívan Guðjón Baldursson
Þýskaland: Liðsfélagar Arons slátruðu Stuttgart í fallbaráttunni
Mynd: Getty Images
Werder Bremen 6 - 2 Stuttgart
1-0 Fin Bartels ('10)
1-1 Daniel Didavi ('26)
2-1 Federico Barba ('33, sjálfsmark)
3-1 Levin Oztunali ('42)
3-2 Federico Barba ('53)
4-2 Claudio Pizarro ('64)
5-2 Fin Bartels ('80)
6-2 Anthony Ujah ('86)

Liðsfélagar Arons Jóhannssonar í Werder Bremen mættu Stuttgart í sex stiga fallbaráttuslag í lokaleik 32. umferðar þýsku efstu deildarinnar.

Heimamenn í Bremen komust yfir með marki frá Fin Bartels á tíundu mínútu og voru 3-1 yfir í hálfleik.

Stuttgart minnkaði muninn í 3-2 snemma í síðari hálfleik en hinn 37 ára gamli Claudio Pizarro, sem lagði fyrsta mark leiksins upp, kom heimamönnum í 4-2 áður en Bartels bætti öðru marki sínu við.

Anthony Ujah gerði svo sjötta mark Bremen sem er núna einu stigi frá fallsæti þegar tvær umferðir eru eftir. Bremen á næst útileik gegn Köln á meðan hinn fallbaráttuliðin eiga talsvert erfiðari leiki, gegn Hertha Berlin, Borussia Dortmund og Mainz.

Stöðutöfluna er hægt að sjá hér fyrir neðan. Athugið að það getur tekið hana einhvern tíma að uppfærast.
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner
banner
banner