Rashford, Fonseca, Moyes, Jorginho, Fati, Lenglet, Amorim, Sterling og Lukaku koma við sögu
   þri 03. apríl 2018 20:20
Ívan Guðjón Baldursson
Sjáðu stórkostlegt mark Ronaldo
Stuðningsmenn Juventus stóðu upp og klöppuðu
Langar í sjötta.
Langar í sjötta.
Mynd: Getty Images
Cristiano Ronaldo er búinn að gera bæði mörkin í leik Juventus og Real Madrid í 8-liða úrslitum Meistaradeildarinnar.

Ronaldo kom Real yfir snemma leiks eftir lága fyrirgjöf frá Isco og tvöfaldaði hann forystuna í síðari hálfleik.

Þá kom fyrirgjöf inn frá Danny Carvajal á hægri kanti og virtist knötturinn vera utan seilingar fyrir Ronaldo og á leið til Lucas Vazquez.

Ronaldo tók þá stuttan sprett til baka og hlóð í rándýra bakfallsspyrnu sem söng í netinu. Gianluigi Buffon kom engum vörnum við, hann stóð og horfði á.

Stuðningsmenn Juventus stóðu upp fyrir Ronaldo og klöppuðu, enda stórkostlegt mark á heimsmælikvarða.

Myndband af markinu er hægt að sjá hérna gegnum vefmiðilinn Vísi








Athugasemdir
banner
banner