Rashford, Fonseca, Moyes, Jorginho, Fati, Lenglet, Amorim, Sterling og Lukaku koma við sögu
   þri 03. apríl 2018 18:48
Ívan Guðjón Baldursson
Heimild: Sports Illustrated 
Zlatan hafnaði tíu milljörðum
Mynd: Getty Images
Sænska markamaskínan Zlatan Ibrahimovic hafnaði 10 milljörðum íslenskra króna til að spila fyrir LA Galaxy, samkvæmt yfirmanni hjá bandaríska félaginu.

Jovan Kirovski er hátt settur innan félagsins og hefur hitt Zlatan reglulega undanfarin ár til að byggja upp gott samband. Það var fyrir fjórum mánuðum sem Zlatan varð loks sannfærður og ákvað að flytja til Los Angeles.

Hjá Los Angeles fær Zlatan 1.5 milljón dollara á ári í tvö ár, vegna launaþaks deildarinnar. Það eru 150 milljónir íslenskra króna á ári.

Kirovski segir Zlatan hafa hafnað tilboði frá Kína sem hefðu skilað Svíanum 100 milljónum dollara á nokkrum árum.

„Mino Raiola, umboðsmaður Zlatan, horfði á mig og spurði hvort mér væri alvara þegar ég talaði við hann um launamálin," sagði Kirovski við Grant Wahl, fréttamann Sports Illustrated.

Það var Zlatan sjálfur sem ákvað á endanum að fara til Los Angeles. Hann segist ekki þurfa meiri pening á þessum tímapunkti.
Athugasemdir
banner
banner
banner