Kristian Nökkvi Hlynsson og Willum Þór Willumsson voru báðir í byrjunarliðinu þegar Ajax fékk Go Ahead Eagles í heimsókn í Hollandi í kvöld.
Ajax var með forystuna í hálfleik en mark í uppbótatíma hjá Go Ahead Eagles tryggði liðinu stig.
Kristian var tekinn af velli í liði Ajax þegar tæpur stundafjórðungur var til loka venjulegs leiktíma en Willum spilaði allan leikinn í liði Go Ahead Eagles.
Aðeins fjögur stig skilja liðin að en Ajax er í 5. sæti og Go Ahead Eagles í sjöunda sæti. Ajax hóf tímabilið mjög illa en náði að rétta úr kútnum. Liðið á enn tölfræðilega möguleika að komast í Meistaradeildina en þrjú efstu liðin fara í keppnina. Liðið er 12 stigum á eftir Twente og 18 stig í pottinum.
Athugasemdir