Meiðslavandræði halda áfram að herja á Manchester United en Jonny Evans og Raphael Varane þurftu að fara af velli þegar liðið tapaði gegn Chelsea í kvöld.
Varane var í byrjunarliðinu en þurfti að fara af velli snemma í síðari hálfleik. Evans kom inn á í hans stað en þurfti einnig að fara af velli stuttu síðar og hinn ungi Willy Kambwala kom inn á í hans stað.
„Það hjálpar ekki á svona augnablikum, það hjálpar að hafa leiðtoga á vellinum. Casemiro fór líka af velli. Það hjálpar ekki. Þeir vita hvernig á að díla við pressuna og hvernig á að koma sigirinum yfir línuna," sagði Ten Hag.
Miðvarðarstaðan verður mikill hausverkur fyrir Ten Hag fyrir stórleik helgarinnar gegn Liverpool en hann gat ekki sagt til um hversu alvarleg meiðsli Varane og Evans eru. United tilkynnti í vikunni að Lisandro Martinez og Victor Lindelöf verði fjarverandi í að minnsta kosti mánuð.