Rashford, Fonseca, Moyes, Jorginho, Fati, Lenglet, Amorim, Sterling og Lukaku koma við sögu
   lau 07. apríl 2018 14:45
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Rooney brjálaður með skiptingu - „Ég tek ákvarðanirnar"
Mynd: Getty Images
Wayne Rooney tók ekki vel í það þegar honum var skipt af velli í markalausu jafntefli Everton og Liverpool.

Hinn 32 ára gamli Rooney byrjaði leikinn en var skipt af velli eftir 57 mínútur. Hann var mjög ósáttur með þetta og blótaði stjóra sínum.

Þetta er annar leikurinn í röð þar sem Rooney er tekinn af leikvelli þegar 57 mínútur eru búnar.

Sam Allardyce svaraði fyrir sig á blaðamannafundi eftir leik.

„Wayne er vonsvikinn að hafa verið tekinn af velli en ég tek ákvarðarnirnar og mér fannst við gera rétt með þessum breytingum," sagði Allardyce um skiptinguna.



Athugasemdir
banner
banner
banner
banner