Rashford, Fonseca, Moyes, Jorginho, Fati, Lenglet, Amorim, Sterling og Lukaku koma við sögu
   mán 09. apríl 2018 20:29
Ívan Guðjón Baldursson
Þýskaland: Leverkusen skellti Leipzig
Mynd: Getty Images
Leipzig 1 - 4 Leverkusen
1-0 Marcel Sabitzer ('17)
1-1 Kai Havertz ('45)
1-2 Julian Brandt ('51)
1-3 Panagiotis Retsos ('56)
1-4 Kevin Volland ('69)

RB Leipzig fékk Bayer Leverkusen í heimsókn í meistaradeildarbaráttu þýska boltans í kvöld.

Marcel Sabitzer kom heimamönnum yfir snemma leiks en Kai Havertz náði að jafna rétt fyrir leikhlé.

Julian Brandt kom gestunum yfir í upphafi síðari hálfleiks og tvöfaldaði Panagiotis Retsos forystuna skömmu síðar. Kevin Volland rak síðasta naglann í kistuna þegar tuttugu mínútur voru eftir.

Leverkusen er í fjórða sæti eftir sigurinn, tveimur stigum fyrir ofan Frankfurt og Leipzig sem verma evrópudeildarsætin.
Athugasemdir
banner
banner