Fundað um Pochettino - Man City tryggir sér undrabarn - Arsenal ætlar að styrkja hópinn
   þri 11. nóvember 2014 20:30
Alexander Freyr Tamimi
Suarez verður mikilvægari með hverjum deginum
Luis Suarez hefur byrjað vel hjá Barcelona.
Luis Suarez hefur byrjað vel hjá Barcelona.
Mynd: Getty Images
Luis Suarez er hratt og örugglega að verða lykilmaður í liði Barcelona, segir markvörðurinn Claudio Bravo.

Framherjinn gekk til liðs við Börsunga í sumar frá Liverpool fyrir fúlgur fjár en gat ekki spilað sinn fyrsta alvöru leik fyrr en þann 25. október, gegn Real Madrid, vegna leikbanns.

Úrúgvæinn hefur þó komið nokkuð sterkur inn þrátt fyrir fjarveruna og lagt upp þrjú mörk í fyrstu þremur deildarleikjum sínum.

Bravo, sem hefur verið aðalmarkvörður Börsunga í fyrstu 11 leikjunum í deildinni, segir að Suarez komi til með að vera alger lykilmaður.

,,Luis er nú þegar mikilvægur leikmaður í liðinu og mikilvægi hans eykst með hverjum deginum," sagði Bravo á blaðamannafundi.

Sjálfur verður Bravo í eldlínunni gegn Suarez þegar Síle og Úrúgvæ mætast í landsleikjahléinu.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner