Fundað um Pochettino - Man City tryggir sér undrabarn - Arsenal ætlar að styrkja hópinn
   fim 12. janúar 2017 23:00
Jóhann Ingi Hafþórsson
Manchester United hafnar tilboði í Memphis Depay
Memphis Depay
Memphis Depay
Mynd: Getty Images
Manchester United hefur hafnað tilboði frá franska félaginu Lyon í Memphis Depay en kaupverðið hefur ekki verið gefið upp.

Ljóst er að að Hollendingurinn mun yfirgefa Old Trafford mjög fjótlega en tilboð Lyon þótti ekki nægilega gott.

Jose Mourinho hefur sagt að United ætli ekki að lána Depay, heldur selja hann.

Hinn 22 ára gamli Depay kom til United frá PSV Eindhoven fyrir 25 milljónir punda er Louis van Gaal stýrði félaginu en Jose Mourinho er ekki mjög hrifinn af leikmanninum.
Athugasemdir
banner
banner