Fundað um Pochettino - Man City tryggir sér undrabarn - Arsenal ætlar að styrkja hópinn
   fös 16. febrúar 2018 15:30
Magnús Már Einarsson
Keane: Gylfi hefur verið frábær fyrir okkur
Gylfi fagnar marki.
Gylfi fagnar marki.
Mynd: Getty Images
Michael Keane, varnarmaður Everton, hefur hrósað Gylfa Þór Sigurðssyni fyrir frammistöðu sína á tímabilinu.

„Gylfi hefur verið í efsta gæðaflokki og Oumar (Niasse) líka," sagði Keane þegar hann talaði um fremstu menn Everton.

Gylfi skoraði sitt sjötta mark á tímabilinu þegar hann skoraði með skoti fyrir utan teig gegn Crystal Palace um síðustu helgi.

„Hann hefur skorað nokkur mikilvæg mörk á þessu tímabili. Hann hefur verið frábær leikmaður fyrir okkur."

„Hann hefur svo mikil gæði að það er hægt að treysta á að hann standi sig alltaf vel í hverri viku."

Athugasemdir
banner
banner