Rashford, Fonseca, Moyes, Jorginho, Fati, Lenglet, Amorim, Sterling og Lukaku koma við sögu
   mið 16. júlí 2014 18:00
Daníel Freyr Jónsson
Heimild: Daily Mail 
Liverpool og Tottenham berjast um Ben Davies
Ben Davies.
Ben Davies.
Mynd: Getty Images
Hinn 21 árs gamli Ben Davies, leikmaður Swansea, er eftirsóttur af bæði Liverpool og Tottenham.

Þessi efnilegi leikmaður er metinn á 12 milljónir punda af Swansea, en samkvæmt Daily Mail hefur 8 milljón punda tilboði Liverpool í leikmanninn þegar verið hafnað.


Davies spilar í stöðu bakvarðar og hefur þrátt fyrir ungan aldur spilað 71 leik í ensku úrvalsdeildinni. Þá hefur hann spilað 10 leiki með welska landsliðinu.

Liverpool leitar þessa stundina að bakverði til að bæta í hópinn. Auk Davies hafa þeir Alberto Moreno og Daley Blind verið orðaðir við félagið.
Athugasemdir
banner
banner