Fundað um Pochettino - Man City tryggir sér undrabarn - Arsenal ætlar að styrkja hópinn
   fös 17. mars 2017 23:15
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
„Payet er einn besti leikmaður heims"
Payet fór aftur til Marseille.
Payet fór aftur til Marseille.
Mynd: Getty Images
Doria, brasilískur varnarmaður Marseille, hefur spilað með mögnuðum leikmönnum á borð við Ronaldinho og Neymar, en að hans mati er Dimitri Payet einn af bestu leikmönnum heims.

Payet hefur skorað tvisvar og lagt upp tvö síðan hann gekk aftur í raðir Marseille í janúar. Hann var óánægður í herbúðum West Ham og greip til örþrifaráða við að komast þaðan burt.

„Payet er einn af bestu leikmönnum heims," sagði Doria við Goal.com, en hann hefur greinilega mikið álit á nýjum liðsfélaga sínum.

„Ég þekkti hann áður, frá því þegar ég kom fyrst. Hann er mjög fyndinn náungi, og hann er mjög áræðinn leikmaður með mikla tækni."

„Ég er ánægður með að sjá hann koma til baka. Ég er aðallega feginn yfir því að hann hafi staðið sig vel á meðan hann var í burtu og komið svo aftur og haldið áfram á svipuðum nótum. Ég tel að það sé mikilvægt."
Athugasemdir
banner
banner
banner